Forsíða Prenta Veftré Leita

Vistgjöld
Vistgjöld eru greidd fyrirfram.  Greitt er fyrir einn mánuð í senn og gjald lækkar ekki þó barn sé fjarverandi.   Hægt er að velja um mismunandi greiðsluform: greiðsluþjónustu bankanna eða greiðslukort. Ef nauðsyn krefur geta foreldrar greitt með gíróseðli en stefna Reykjanesbæjar er að halda því greiðsluformi í lágmarki til að forðast vanskil.
Systkinaafsláttur: Ef barn á systkini í leikskóla eða hjá dagmömmu er veittur afsláttur á vistgjöldum.  Fyrir fyrsta barn er greitt 100%, annað barn 50%, þriðja og fjórða barn frítt.
Skuldi foreldrar þrjá mánuði er barninu sagt upp leikskólarýminu og skuldin sett í innheimtu lögfræðings. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við 1. hvers mánaðar, sama gildir um vistunartímabreytingar. Uppsagnir og breytingar á dvalarsamningi fara fram hjá leikskólastjóra.  Dvalargjald barns er reiknað í heilum og hálfum klukkustundum. Foreldrar eru vinsamlegast beðnir að virða umsamdan dvalartíma. Vinnutími starfsmanna er skipulagður með tilliti til dvalarsamninga.

Niðurgreiðsla á leikskólagjöldum
Þeir foreldrar sem óska eftir að fá niðurgreiðslu á leikskólagjöldum þurfa að sækja um það á þar til gerðu eyðublaði hjá leikskólafulltrúa á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar. Til að greiða lægra gjald þarf að framvísa vottorði Tryggingarstofnunar um greiðslu mæðra/feðralauna. Breyting kemur til framkvæmda 1. næsta mánaðar eftir samþykkt umsóknar. Endurnýja þarf umsóknina fyrir 1. september ár hvert.

 
Yfirumsjón - sérfræðiþjónusta  
Málefni  leikskóla heyra undir Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar. Fræðsluráð hefur umsjón með málefnum leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla í umboði bæjarstjórnar.
Fræðslustjóri erGylfi Jón Gylfason.  Sérkennslufulltrúi er Ingibjörg Hilmarsdóttir, hún hefur yfirumsjón og veitir ráðgjöf vegna sérkennslu til starfsfólks og foreldra. Börn í leikskólum Reykjanesbæjar hafa aðgang að sérfræðiaðstoð á vegum skólaskrifstofu  Á hennar vegum eru starfandi talmeinafræðingur og sálfræðingar.
Sími á skólaskrifstofu er 421 - 6700.

Fatnaður
Mikilvægt er að allur fatnaður barnanna sé vel merktur.  Mörg börn ganga um leikskólann dag hvern og  alltaf er hætta á að að fatnaður týnist. Einnig er  mikilvægt að klæðnaður hefti ekki barn í leikgleði sinni. Í leikskólum er unnið með fjölbreyttan efnivið því getur málning, lím og fleira farið í fatnað barnanna þó starfsfólk leiti allra leiða til að það gerist ekki. Nauðsynlegt er að aukafatnaður sé í tösku barnanna ef óvænt slys verða. Mikilvægt er að börnin hafi með sér hlýjan fatnað, regnfatnað, stígvél, húfu og vettlinga í tösku vegna síbreytilegrar veðráttu hér á landi.

Óhöpp, slys og veikindi
Slasist barn í leikskólanum og talin er þörf  á aðstoð læknis er haft samband við foreldra, einnig ef barn veikist í leikskólanum. Ef ekki næst í foreldra fer starfsfólk með barnið á slysamóttöku HSS. Börn í leikskólum Reykjanesbæjar eru slysatryggð á meðan þau dvelja í leikskólanum.

Lyfjagjöf
Í flestum leikskólum eru einhver börn sem þurfa að taka inn lyf á meðan þau dvelja í leikskólanum. Börnin skulu ekki fá önnur lyf en þau sem læknir hefur ávísað á þau. Ef nauðsyn er á lyfjagjöf í leikskólanum skulu foreldrar fylla út sérstakt eyðblað hjá deildarstjóra. Lyf eru geymd í læstri hirslu í leikskólanum.  Lyfjagjöf í leikskóla er alltaf neyðarúrræði ef því verður komið við skulu foreldrar gefa lyfin heima.

Viðtalstímar
Viðtalstímar  við starfsfólks leikskólans eru  eftir samkomulagi. Ef foreldrar hafa einhverjar spurningar eða hafa þörf á að ræða við starfsfólkið er það að sjálfsögðu alltaf til taks.  Gott er að panta viðtalið með nokkurra daga fyrirvara.

Fjarvistir barna
Vinsamlegast látið starfsfólk leikskólans vita ef barn er veikt eða í fríi.  

Breytt heimilisfang – breyting á högum
Mikilvægt er að foreldrar tilkynni breytt heimilisfang og símanúmer  heima og í vinnu. Einnig biðjum við foreldra að láta vita um stórvægilegar breytingar á högum fjölskyldunnar t.d. við skilnað, andlát eða alvarleg veikindi.  Gott upplýsingastreymi gerir okkur kleyft að veita barninu réttan stuðning við ákveðnar aðstæður.

Persónulega hirslan
Hvert barn á sína persónulegu hirslu í leikskólanum þar sem geymd eru verk barnsins og aðrir hlutir sem tilheyra barninu.  Foreldrar eru hvattir til að líta í skúffur barnanna og tæma þær reglulega.

Leikföng að heiman
Ekki er leyfilegt að börnin komi með leikföng að heiman í leikskólann. Við gerðum tilraun með það að leyfa börnunum að taka með sér lítinn hlut sem þeim þótti vænt um  með sér í leikskólann t.d. bangsa, dúkku, bók eða lítinn bíl.  En því miður fór það út í það að börnin höfðu sum hver með sér leikföng daglega og mörg hver verðmæt og börnunum mjög hjartfólgin. Þetta skapaði deilur barnanna á milli og oft á tíðum vanlíðan hjá einstaka barni. Einnig skapaðist mikið álag á starfsfólk sem oft á tíðum þurfti að leita um allan skólann eftir týndu leikfangi í lok dagsins. Börn í aðlögun mega koma með tengihlut þ.e. bagnsa, teppi bleiu eða eitthvað slíkt, það hjálpar litlu krílunum í aðlöguninni.  Í leikskólanum er fjölbreyttur efniviður sem á að geta fullnægt þörfum barnahópsins.

Skipulagsdagar
Skipulagsdagar eru fjórum sinnum á ári og eru auglýstir með mánaðar fyrirvara.  Þeir eru nýttir til faglegrar samvinnu og endurskipulagningar starfsins.

Sumarleyfislokun
Leikskólinn er lokaður í 5 vikur ár hvert.  Leikskólar Reykjanesbæjar skiptast á sumarleyfistímum, þannig að aldrei er lokað á sama tíma tvö ár í röð.

Starfsmannafundir
Fimm starfsmannafundir eru yfir árið og eru þeir frá kl. 8.00 - 10.00 og er leikskólinn lokaður á meðan. Börnin mæta kl. 10.00 þessa daga. Fundirnir eru á skóladagatali og er þeir líka auglýstir með góðum fyrirvara.

Aðfangadagur og gamlársdagur
Leikskólinn er lokaður á aðfangadag og gamlársdag.