Á Hjallatúni er starfað útfrá Fjölgreindarkenningu Howard Gardners. Kenningin byggir á því að greind mannsins samanstandi af átta eða fleiri jafngildum greindarsviðum. Þessi svið þroskast mismunandi og á ólíkum tíma hjá hverri manneskju. Greindarsviðin eru samtengd þannig að ef eitt svið þroskast þá gera hin það einnig. Allir einstaklingar læra ólíkt og fer það eftir því hvaða greindarsvið eru sterkust hjá þeim hvaða kennsluaðferðir henta þeim best. Fjölgreindarkenning Gardners undirstrikar einstaklingsmun og mikilvægi þess að koma til móts við þarfir hvers og eins. Mikilvægt er að nota ekki fjölgreindarkenninguna til þess að flokka einstaklingana og festa þá í einni greind, heldur til að hjálpa þeim að finna hvernig þeir geta best lært. Gardner flokkaði greind manna í átta flokka:
Málgreind – Rök- og stærðfræðigreind - Rýmisgreind –Líkams-og hreyfigreind Tónlistargreind – Sjálfþekkingargreind - Samskiptagreind - Umhverfisgreind.
Á Hjallatúni er leitast við að örva allar greindirnar í skipulögðum stundum eins og hópasamveru, í frjálsum leik og við daglegar venjur.
Komnar eru út námskrár fyrir hvern árgang leikskólans. Námskrárnar er aðallega hugsaðar fyrir kennara hvers árgangs þannig að þeir fái skýrari mynd af því hvernig greindirnar birtast hjá börnunum og hvaða kennsluaðferðir henta hverjum og einum. Einnig er námskrárnar hugsaðar fyrir foreldra til að átta sig á hvernig unnið er með hverja greind fyrir sig innan veggja leikskólans Námskrárnar er ekki tæmandi heldur er þær frekar hugsaðar sem dæmi um hvernig greindirnar birtast hjá börnum og hvernig unnið er með þær á Hjallatúni.
Í þessari námskrá fyrir 5-6 ára börn er tíundað hvernig unnið er með hverja greind fyrir sig með þessum aldurshópi.
Málgreind
Börnum með góða málgreind finnst gaman að:
- hlusta á sögur og ævintýri
- tjá sig og segja frá
- nota orðaleiki og leika sér með orð
- Syngja og fara með þulur
Börn sem eru sterk í þessari greind segja skemmtilega frá t.d. hvað þau voru að gera um helgina. Þau hafa góðan orðaforða og eiga auðvelt með að rifja upp og fara eftir munnlegum fyrirmælum. Þessi börn spyrja mikið og eru forvitin um lífið og tilveruna. Eru fljót að læra hugtök og texta.
Við eflum málgreindina með því að:
- Hlusta á sögur, framhaldsögur og ævintýri
- Búa til sögur, ljóð, þulur og vísur.
- Vinna með ljóð, þulur og vísur t.d. með námsefninu Ótrúleg eru ævintýrin.
- Byrja að kynnast bókstöfum.
- Byrja að draga til stafs (fyrsti stafurinn í nafni barnsins).
- Kynnast hugtökum eins og orð og setning.
- Leika með fyrsta stafinn í nafni barnsins og nafnið allt.
- Leika með orð, rím og samstöfur ( klappa atkvæði í orðum).
- Fara í fjölbreytta hlustunarleiki.
- Fara í leiki og gera verkefni sem þjálfa hljóðkerfisvitund.
- Koma fram fyrir stóran og lítinn hóp og tjá okkur.
- Læra vikudaga og mánuði.
- Læra eigin heimilisföng og símanúmer.
- Hafa frjálsan aðgang að skriftarkrók sem m.a. inniheldur stafaspjöld, stutt orð og nöfn barnanna.
Rök- og stærðfræðigreind
Börnum með góða rök- og stærðfræðigreind finnst gaman að:
- Spyrja um hvernig hlutirnir virka.
- Byggja og hanna úr margvíslegum kubbum.
- Gera tilraunir.
- Tölvuleikjum.
- Búa til mynstur og form úr ýmsum efniviði.
Börn sem eru sterk í þessari greind eru dugleg að leika sér með tölur og mæla hluti út. Þau eru sterk í rökhugsun og því henta heimspekilegar samræður þeim vel. Tölva hentar þessum börnum einnig vel.
Við eflum rök- og stærðfræðigreind með því að:
- Leika með kubba af öllum stærðum og gerðum sbr. einingakubba, stóra holkubba, legókubba, bjálkakubba, kappakubba o.fl.
- Vinna með tölur og talnagildi
- Spila fjölbreytt spil sem þjálfa rökhugsun, tölur og talningu
- Telja upp í 20 og yfir.
- Leika með viðbótarefni í einingakubbum eins og pappír, steina, efnisbúta o.s.frv.
- Telja hve margir eru mættir dag hvern, hversu marga vantar o.s.frv.
- Telja glös, diska og hnífapör þegar lagt er á borð.
- Læra algengustu formin ( hringur, þríhyrningur og ferhyrningur).
- Hafa frjálsan aðgang að stærðfræðikrók sem m.a. inniheldur rökkubba, talnagrind, talnaspjöld og tölustafi.
- Leysa úr ágreiningi með umræðum.
Rýmisgreind
Börnum með góða rýmisgreind finnst gaman að:
- Sjá hlutina fyrir sér.
- Leika sér með form og liti.
- Byggja og hanna úr fjölbreyttum kubbum.
- Byggja og hanna úr verðlausum efnivið.
- Byggja og hanna út í náttúrunni.
Börn sem eru sterk í þessari greind eru góð í að teikna, mála og raða saman myndspilum. Þau geta einnig setið lengi við að móta úr leir allskonar form og fígúrur.
Þau er dugleg við að skapa úr verðlausum efnivið bæði úti og inni t.d. skapa út í náttúrunni, búa til úr blómum, hanna úr steinum, spýtum sandi mold.
Við eflum rýmisgreind með því að:
- Nota fjölbreyttan efnivið til listsköpunar bæði verðlausan og aðkeyptan.
- Nota margar tegundir af litum og málningu.
- Leika með leir og sand.
- Leika með kubba af öllum stærðum og gerðum.
- Leika með viðbótarefnivið í einingakubbum eins og pappír, steina, efnisbúta o.s.frv.
- Læra að þekkja algengustu formin ( hringur, þríhyrningur og ferhyrningur).
- Púsla fjölbreytt púsluspil.
- Fara í vettvangsferðir út í náttúruna.
- Fara í vettvangsferðir á listasöfn, bókasöfn o.s.frv.
Líkams- og hreyfigreind
Börnum með góða líkams- og hreyfigreind finnst gaman að:
- Dansa og fara í hreyfileiki.
- Hlaupa og ganga.
- Stökkva og klifra.
- Byggja úr kubbum.
- Fara í vettvangsferðir.
- Perla með litlum perlum.
- Teikna, föndra.
Börn sem eru sterk í þessari greind eru dugleg í fínhreyfingum svo sem að perla, teikna og klippa. Þau eru einnig góð í grófhreyfingum og margvíslegar íþróttir henta þessum börnum vel. Þau hafa gaman fara í vettvangsferðir,klifra ganga á steinum taka spretti upp hæðir og hóla.
Við eflum líkams- og hreyfigreind með því að:
- Fara í þrautabrautir og hreyfileiki úti og inni.
- Fara í lengri og styttri vettvangsferðir um allan bæ.
- Leika í skipulögðum og frjálsum leik í sal.
- Þjálfa fínhreyfingar með því að byggja úr kubbum, teikna, lita, leira, perla með stórum og litlum perlum o.s.frv.
- Vinna með fjölbreyttar foræfingar sem m.a. þjálfa skriftarátt.
- Æfa blýantsgrip og setstöðu.
- Klæða sig sjálf úr og í útifatnað og ganga snyrtilega frá í fataklefa.
Tónlistargreind
Börnum með góða tónlistargreind finnst gaman að:
- Syngja ein og með öðrum.
- Blístra og raula.
- Slá takt með höndum og fótum.
- Hlusta á tónlist.
- Margvíslegum hljóðfærum og hljóðgjöfum.
- Dansa.
Börn sem eru sterk í þessari greind hafa yndi af allskonar tónlist. Þau geta haft gaman af söng og vinna með takt, nótur og margskonar hljóðgjafa.
Við eflum tónlistargreind með því að:
- Syngja á hverjum degi.
- Dansa og fara í hreyfileiki.
- Hlusta á og dansa við tónlist.
- Læra að nota einföld hljóðfæri eins og hristur og tónstafi og leika meðhljóðgjafa.
- Fara í takt og hlustunarleiki.
- Læra ljóð, þulur og vísur.
- Klappa samstöfur (atkvæði í orðum).
- Slá og klappa taktinn.
Samskiptagreind
Börnum með góða samskiptagreind finnst gaman að:
- Vinna með öðrum í stórum og litlum hópum.
- Hafa forustu í barnahópnum.
- Skipuleggja og stjórna.
- Miðla málum.
- Taka þátt í margvíslegum uppákomum.
Börn sem eru sterk í þessari greind hafa gaman af að vinna í hóp, taka þátt í hópleikjum og stjórna stórum hóp t.d. í hlutverkaleik. Þau koma óskum sínum á framfæri, eru vinsæl, sýna forystuhæfileika og bera umhyggju fyrir öðrum.
Þau hafa gaman að taka þátt í uppákomum t.d taka þátt í leikritum
Við eflum samskiptagreind með:
- Leika við önnur börn.
- Námsefninu Stig af stigi sem þjálfar tilfinninga og félagsþroska.
- Spila fjölbreytt spil sem m.a. þjálfa samvinnu.
- Fara í hópleiki.
- Vinna saman að verkefnum í stórum og litlum hópum.
- Taka þátt í uppákomum, koma fram og tjá okkur.
- Taka þátt í samverustundum.
- Umræðum í samverustundum við matarborðið o.s.frv.
- Bíða eftir að röðin komi að okkur.
- Leysa úr ágreiningi, að hægt er að ræða saman til að leysa deildur.
- Setja orð á tilfinningar okkar og annarra og ræða um tilfinningar.
Sjálfsþekkingargreind
Börnum með góða sjálfsþekkingargreind finnst gaman að:
- Setja sér markmið.
- Miðla málum.
- Áætla og íhuga.
- Leika sér ein.
-
Börn sem hafa góða sjálfsþekkingargreind þurfa að fá næði til að vera ein með sjálfum sér og fá viðfangsefni þar sem þau ráða ferð og vinnuhraða. Þau vita hvað þau vilja og standa við það. Þau eru meðvituð um sínar sterku og veiku hliðar.
Við eflum sjálfsþekkingargreind með því að:
- Setja orð á tilfinningar okkar og annarra og ræða um tilfinningar.
- Velja sjálf hvar við leikum, með hvað við viljum leika og við hvern.
- Fá tækifæri til að leysa deildur með hjálp fullorðinna.
- Setja sig í spor annarra með hjálp fullorðinna.
- Kynnast okkar sterku hliðum.
- Fá tækifæri til að vera ein með sjálfum okkur og í fámennum hópi.
- Koma fram fyrir hóp, tjá okkur og segja frá.
- Læra innlifun, að leysa úr vanda og sjálfstjórn í gegnum námsefnið Stig af stigi.
Umhverfisgreind
Börnum með góða umhverfisgreind finnst gaman að:
- Rannsaka og upplifa náttúruna.
- Dýrum og plöntum.
- Að fara í vettvangsferðir.
Börn sem eru sterk í þessari greind hafa mikinn áhuga á pöddum, ormum og dýrum. Þau tína steina, spýtur og annað sem finnst í náttúrunni. Þau sýna náttúrunni mikinn áhuga og umhyggju. Þau hafa gaman af að fara á nýja staði, skoða söfn, fræðslubækur og fl.
Við eflum umhverfisgreind með því að :
- Fara í langar og stuttar vettvangsferðir.
- Kynnast umhverfi og náttúru bæjarins.
- Skoða grunnskóla bæjarins og skólalóðir þeirra.
- Æfa umferðareglurnar
- Nota efnivið náttúrunnar til listsköpunar.
- Lesa og skoða bækur um náttúruna.
- Læra um dýr í íslenskri náttúru og íslensku húsdýrin.
- Læra um dýr, fugla og fiska er byggja þennan heim.
- Umræðum um veðrið og árstíðirnar.