Forsíða Prenta Veftré Leita
Leikskólinn Hjallatún opnaði 8. janúar árið 2001.  Í leikskólanum eru að jafnaði um eitt hundrað börn og u.þ.b. tuttugu og sjö starfsmenn.

Húsakynni og barnafjöldi
Tveir gangar eru í leikskólanum,  Austurgangur fyrir 2 - 4 ára börn og Vesturgangur fyrir
4 - 6 ára börn. Á hverjum gangi eru tvær heimastofur, þær heita Logaland og Ljósaland á Vesturgangi og Varmaland og Bjarmaland á Austurgangi. Hverri heimastofu fylgja hvíldarherbergi og salerni. Heimastofurnar á hvorum gangi  fyrir sig vinna saman og mynda eina heild.  Reynt er að hafa umhverfið hlýlegt og heimilislegt þar sem  börn og starfsfólk dvelja hér allan daginn.  Á Hjallatúni dvelja 94 börn samtímis og fjöldi barna á hverri heimastofu er  á milli tuttugu og tvö og tuttugu og fimm, en það fer það eftir aldri barnanna.

Heilsdagsleikskóli
Leikskólinn Hjallatún er heilsdagsleikskóli.  Ljóst er að barn sem dvelur 8 – 9 tíma í leikskóla hefur aðrar þarfir en barn sem dvelur 4 - 6 tíma. Í markmiðssetningu okkar kemur þetta skýrt fram, þar sem við leitumst við að sinna þörfum hvers einstaklings og reynum að láta barnið hafa töluverð áhrif á hvernig dagur þess gengur fyrir sig. Þetta gerum við því með að hafa dagskipulagið einfalt og opið með það að markmiði að  brjóta daginn eins lítið upp og mögulegt er til að rjúfa sem minnst leik barnanna.