22. desember 2011
Jólalandafundur
Allar heimastofurnar gerðu sér jólalegan morgun og fóru út og héldu Jólalandafund. Kveikt var á nokkrum útikertum og þeim stillt í miðju sandkassans svo var dansað og sungið í kringum sandkassann. Að því loknu fengu öll ilmandi heitt og gott kakó og kex með því. Endilega kíkið á myndirnar í sameiginlega myndabankanum okkar undir Jólalandafundur.
Með því óskum við ykkur gleðilegra jóla og farsælt komandi ár.
Til baka
|