Forsíða Prenta Veftré Leita
2. júní 2010
Nýjar Myndir Frá Vesturgangi

Inn í sameiginlega myndabankann okkar hér til hliðar eru komnar nýjar myndir frá Vesturgangi.  

Albúmin heita: Útskriftarferð skólahóps 2010, en skólahópurinn fór í útskriftarferð í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn ásamt kennurum, og skemmtu sér konunglega.  Vesturgangur -  Vor og sumar 2010,  þar má sjá blandaðar myndir frá bæði Ljósalandi og Logalandi í leik og starfi.  Útskriftarhátíð Skólahóps 2010, í því albúmi má sjá undirbúning barnanna fyrir útskriftarhátíðina og myndir af hátíðinni sjálfri.

Við reynum svo eftir fremsta megni að koma með nýjar myndir reglulega fram að sumarfríi :)

Góða skemmtun

 

(Athugið að myndirnar gætu komið í rangri tímaröð, s.s. það þarf að fara á síðustu myndina og vinna sig til baka). 



Til baka